Orðaskrá StjarnvísindafélagsinsÞeir sem hafa hug á að nýta sér orðaskrána geta nálgast hana með því að smella á tilvísunina hér að neðan. Í sambandi við notkun tölvuorðabankans er vert að benda á eftirfarandi atriði . Í fyrsta lagi þarf að velja rétt tungumál áður en leitin hefst. Í öðru lagi getur verið betra að einskorða leitina við "Stjörnufræði" nema ætlunin sé að leita í fleiri orðaskrám, t.d. orðaskrá um eðlisfræði. Í þriðja lagi getur verið þægilegt að slá aðeins inn hluta úr orði eða orðasambandi ef óvissa ríkir um einhvern lið þess, eða óskað er eftir að sjá skyld orð. Þannig má slá inn *longitude til að fá öll orðasambönd sem enda á orðinu longitude (7 talsins), longitude* til að fá sambönd sem byrja á þessu sama orði (4 tilvik) eða *longitude* til að fá sambönd sem innihalda þetta orð (9 tilvik). Ef skýringu vantar á skammstöfun (t.d. AAT eða VLBI) nægir að slá hana inn. Nánari upplýsingar er að finna í hjálpartexta orðabanka Íslenskrar málstöðvar. Hér fæst svo samband við
orðabankann.
|