Um fánadaga gildir eftirfarandi forsetaúrskurður
frá 23. janúar 1991 með breytingu sem auglýst var 17. desember 2008
þegar fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar var gerður að fánadegi.
Draga skal fána á stöng á húsum
opinberra stofnana, sem eru í umsjá valdsmanna eða sérstakra
forstöðumanna ríkisins, eftirgreinda daga:
1. Fæðingardag forseta Íslands.
2. Nýársdag.
3. Föstudaginn langa.
4. Páskadag.
5. Sumardaginn fyrsta.
6. 1. maí.
7. Hvítasunnudag.
8. Sjómannadaginn.
9. 17. júní.
10. 16. nóvember, fæðingardag Jónasar Hallgrímssonar
11. 1. desember.
12. Jóladag.
Alla ofangreinda daga skal draga fána að hún, nema
föstudaginn langa, þá í hálfa stöng.
Hverja daga aðra en í 1. gr. segir og við hvaða
tækifæri flagga skal á landi, fer eftir ákvörðun forsætisráðuneytisins.
Fána skal eigi draga á stöng fyrr en klukkan sjö að
morgni og að jafnaði skal hann eigi uppi vera lengur en til sólarlags og
aldrei lengur en til miðnættis.
Ef flaggað er við útisamkomu, opinbera athöfn,
jarðarför eða minningarathöfn má fáni vera uppi lengur en til sólarlags
eða svo lengi sem athöfn varir, en þó aldrei lengur en til miðnættis.
Um fána á bátum og skipum skal leita leiðbeininga
Landhelgisgæslu Íslands eða Siglingamálastofnunar ríkisins.
26.12. 2008 |